Free delivery when you spend over $75
Easy online returns process
Up to 30% OFF Storewide

Age summum krem

Bylting Gegn aldursbreytingum

Andlitskrem sem er hlaðið lífvirkum innihaldsefnum sem vinna saman að því að sporna gegn ótímabærum aldursbreytingum húðar. Efnin styðja við eðlilega starfsemi húðar og auka hæfileika hennar til að starfa sem lengst við bestu líffræðilegu skilyrði til að viðhalda endurnýjunar- og varnarhæfni sinni.

Með Age Summum kreminu endurheimtir og eflir húðin ónæmiskerfi sitt og endurnýjunarhæfni húðfrumna gegn þeim áhrifum sem auka á öldrun húðar. Age Summum andlitskremið er einstakt og ekki sambærilegt öðrum kremum. Kremið byggir á þróun GUINOT á efnasambandinu Immune Complex.




HJÁLPAR TIL VIÐ AÐ:
- Draga úr hrukkum og fínum línum
– Stinnir húðina


– Draga úr litaflekkjum
– Endurvekur ljóma húðar


Meðferðarsvæði: Andlit
Húðgerð: Allar húðgerðir, Þreytt húð
Áferð: Krem

'

Notkun

Notist kvölds og/eða morgna á hreina húð á andlit og háls.

LYKILINNIHALDSEFNI

IMMUNE COMPLEX

Verndar Langerhansfrumur sem styðja við ónæmiskerfi húðar.

ACTINERGIE

Ýtir undir efnaskipti hvatbera með því að virkja orkubirgðir í formi ATP og þar af leiðandi bæta frumuöndun. Örvar vöxt fíbróblasta og lagar þar með öldrunarþætti húðar og grynnkar hrukkur.

C VÍTAMÍN

Andoxandi, hindrar virkni stakeinda, örvar kollagenmyndun og lýsir/minnkar litaflekki.

ATP - ADENOSÍNÞRÍFOSFAT

Lífræn orkusameind frumna þ.e. flytur orku til frumna.

CELLULAR LIFE COMPLEX

Uppbyggjandi, örvar frumuendurnýjun.

Aðrar húðvörur í sömu vörulínu