Free delivery when you spend over $75
Easy online returns process
Up to 30% OFF Storewide

Hydra Summum Serum

Rakaserum gegn aldursbreytingum

Vatn er húðfrumum lífsnauðsynlegt. Því er mikilvægt að veita húðinni nægan raka til að varðveita æsku hennar og fegurð.

Með aldrinum hægir á getu húðarinnar til að framleiða raka. Húðin missir ljóma og það fer bera á óþægindatilfinningu og fínum línum vegna vökvaskorts. Hydra Summum serumið er ríkt af Hydralogic sameindinni, sem inniheldur háan styrk hýalúronsýrum og Aquasilanol, til að endurheimta raka ungrar húðar og endurvirkja rakakerfi húðarinnar:

1. Myndar varnarhjúp til að draga úr rakatapi

3. Festir vatn á húðinni

3. Bætir flutning á vatni frá leðurhúð til húðþekju


Serumið skal nota sem viðbót við önnur krem. Það er tilvalið til að fríska upp á húðina með kröftugri rakagjöf en einnig til að endurnæra húð sem stundum er þurr.

HYDRA SUMMUM SERUM
Rakaheimt húðarinnar:
– Mjúk og þægileg
– Teygjanleg og þétt
– Slétt og ljómandi

Húð sem er í fullkomnu rakajafnvægi endurheimtir unglegt yfirbragð á ný.

Meðferðarsvæði: Andlit
Húðgerð: Allar húðgerðir
Áferð: Serum

'

LYKILINNIHALDSEFNI

HYDRALOGIC COMPLEX (hár styrkur af hýalúronsýru og Aquasilanol)

– Myndar varnarhjúp til að hindra rakatap: Varnarhjúpur húðar styrkist og rakaheldni hennar eykst jafnt um húðlögin. Húðin fær rakaforða líkt og á yngri árum. Eykur fyllingu í rakalínum.

– Viðheldur raka: Eykur getu húðar til að viðhalda raka í neðri húðlögum.

– Dreifir raka:  Auðveldar dreifingu raka um húðlögin með því að örva myndun Aquaporins (prótein). Þessi prótein mynda millifrumurás sem auðveldar rakaflæðið.

Aðrar húðvörur í sömu vörulínu