GUINOT er háþróað, árangursríkt franskt fag
vörumerki.
GUINOT vörur og andlitsmeðferðir eru seldar á viðurkenndum snyrtistofum. Þannig tryggir GUINOT að viðskiptavinurinn fái faglega leiðsögn í vali á andlitsmeðferðum og snyrtivörum.
Fyrirtækið René Guinot var stofnað árið 1963 af efnaverkfræðingnum René Guinot.
Árið 1965 voru flestar stofumeðferðir eingöngu unnar með höndunum. Þótti það því bylting þegar HYDRADERMIE meðferðin var kynnt og hefur þróast með árunum og í dag er þetta vinsælasta andlitsmeðferð GUINOT. HYDRADERMIE andlitsmeðferðartækið býður upp á einstaklingsmiðaða andlitsmeðferð og andlitslyftingu án skurðagerðar.
Boðið er upp á GUINOT meðferðir á 11.000 snyrtistofum i yfir 70 löndum, vítt og breytt um heiminn.
GUINOT á sína eigin rannsóknarstofu og verksmiðju sem fengið hafa vottun með hæsta gæðastaðal sem veittur er af alþjóðlegu vottunarstofnuninni: ISO 22716.
Vottunin tryggir gæði framleiðslustaðla: dauðhreinsað vinnusvæði, hreint vatn sem er stöðugt undir eftirliti og rekjanleika hverrar vöru.
Þar vinnur fjöldi vísindamanna að rannsóknum og þróun meðferða og snyrtivara sem bæta árangur og auka vellíðan.
GUINOT vörur eru ekki prófaðar á dýrum og eru án parabena. Virku innihaldsefnin sem fengin eru úr plöntum eru ekki erfðabreytt. Þau eru ræktuð á umhverfisvænan hátt og endurnýja sig.