SEFANDI OG RÓANDI
Sefandi línan kemur til móts við þarfir viðkvæmrar húðgerðar með því að auka raka í efstu hornlögum húðar, mýkja, róa og styrkja varnarhæfni hennar. Við framleiðslu línunnar eru helstu ofnæmisvaldar hafðir til hliðsjónar og reynt að útiloka óæskileg viðbrögð húðar. Þó allar húðgerðir geti fundið tímabundið fyrir einkennum viðkvæmrar húðar, er hún oftast skilgreind sem húð sem hefur færri frumulög hornhúðar og minni eðlilega varnaþætti fitu og raka.